miðvikudagur, febrúar 18, 2009
föstudagur, nóvember 16, 2007
Hring hring
Ég: Halló
Kona: Góðan dag, ég man ekki hvort ég var búin að panta bókina leyndarmál....
Ég: þú er líklegast að hringja í rangt númer
Kona: Nei, er þetta ekki bókasafnið í Kópavogi?
Ég: nei
Kona: nú er þetta ekki 564 0621?
Ég: nei 564 0921
Kona: Ó afsakið
Ekki fyrsta skiptið og eflaust ekki það síðasta.
Birt af
dísella
kl.
14:11
0
skrifaðu mér
mánudagur, október 01, 2007
okur á Íslandi
Það vita nú allir að allt er dýrt á Íslandi en það er alveg fáránlegt að sjá þetta svona á:
http://this.is/drgunni/okur
Þess vegna finnst okkur H&H og öðrum íslendingum gaman að fara til US and A
Birt af
dísella
kl.
20:02
0
skrifaðu mér
fimmtudagur, ágúst 30, 2007
þriðjudagur, ágúst 21, 2007
ójj hvað það er mikil rigning og leiðindi. Þoli ekki svona daga maður verður svo latur eitthvað. Ég nenni ekki neinu en samt nenni ég ekki að nenna neinu. Arngrímur vill ekki sofa en mig langar að sofa. Samt nennir Arngrímur ekki að gera neitt, vill ekki leika, vill ekki sofa, vill ekki sitja og spjalla, vill ekki kúra. Hann er greinilega í sama skapi og ég, nenni ekki neinu fýling.
Birt af
dísella
kl.
16:33
3
skrifaðu mér
miðvikudagur, júlí 18, 2007
Já er svo löngu löngu hætt að skrifa eitthvað almennilegt hérna inn, þessi síða hefur verið meira svona öpdeit á sjálfum mér fyrir þá sem ég hitti sjaldan. Sem sagt lítið um blogg eins og það á að vera. Það verða engar hugleiðingar í þessari færslu í þetta skipti en aldrei að vita að ég fari að breyta því.
Lífið snýst helst um að finna lit á bévítans húsið okkar, get engan vegin ákveðið þetta. Ef við tökum ekki skarið þá verður húsið aldrei málað. Ég er eiginlega búin að fá leið á því að búa í ljótasta húsinu í götunni. Í fyrra sumar brutum við stóran hluta af múrhúðinni vegna skemmda svo það er allt flekótt þar sem nýja pústningin var sett. Kannski ég fái Heiðar snyrti til að kíkja til okkur og litgreina húsið eða spékingana í innlit útlit.
Annars er búið að vera nóg að gera i júli, útskrift, Nördaleikur, brúðkaup afmæli, útileiga eiginlega of mikið. Svo danaferðin á þriðjudaginn svo það lítur út fyrir það að við munum áfram eiga ljótasta húsið í götunni.
Birt af
dísella
kl.
22:26
2
skrifaðu mér
þriðjudagur, júlí 03, 2007
Ótrúlegt en satt þá hef ég fengið lit á mína ofur hvítu húð og það skal ég segja ykkur gerist ekki oft. Mér hefur liðið eins og að vera í útlöndum síðustu daga, Við mæðginin höfum notið sumarblíðunar og farið í margar göngferðir um Kópavoginn. Hef ég komist að því að ég þekki hverfið voða lítið sem við búum í. Kópvogur hefur verið þekktur að hafa götukerfi eins og völundarhús og eru göngustígarnir engin undantekning. Það eru göngustígar útum allt hérna sem ég hafði ekki hugmynd um, faldnir milli húsana hér og þar.
Vonandi verður sumarið áfram svona gott svo við Arngrímur getum haldið áfram að kanna Kópavog.
Birt af
dísella
kl.
14:03
1 skrifaðu mér
